Bátar og skip


21.04.2012 17:29

Mokfiskirí eftir hryggningarstopp.




Já það er mokfiskirí og svona er staðan hjá okkur núna þetta hol var bara dregið í 1/2 tíma og eru þetta 8 til 10 tonn í. Og alltaf full móttakan, svo það er lítill tími til að setja inn færslur þessa stundina það eru allir að gera það gott í trollið þessa stundina.

20.04.2012 21:14

Bilun hjá 123.is


Það er eitthvað vandamál í gangi hjá 123.is varðandi komentin og hefur ekki verið hægt að komennta á síðurnar síðustu tvo daga, en vonandi kemst þetta í lag hið fyrsta.

20.04.2012 19:10

Sá Færeyjiski sem tekin var í gær.




Hér er Venus VA 51 Færeyjiski línubáturinn frá Sandavág sem tekin var af gæsluni fyrir veiðar á lokuðu svæði í gær hann stoppaði ekki lengi hér og var farinn nú seinni partinn. Venus var smíðaður í Frei í Noregi árið 1977





Hér er Venus við Básaskersbryggju og fyrir framan hann er Frár VE sem var fyrrum Færeyjiskur og hét þá Vón TN 381.

20.04.2012 11:11

Á toginu á gamla Frá VE 78




Hér má glöggt sjá í Óskar á Frá á toginu á Frá, en hann sést vel þarna í glugganum blessaður.



Og þarna má enn sjá í gamla í glugganum að fylgjast vel með öllu sem er í kring um bátinn.

20.04.2012 00:33

1905 Jöfur KE 17




Jöfur KE 17 einn raðsmíðarskipana 5 sem smíðaðir voru í þremur skipasmíðarstöðvum á Islandi Jöfur KE var sá eini af þeim sem smíðaður var í Stálvík í Garðabæ og var mjög ólíkur hinum 4, og þá sérstaklega út af staðsettninguni á brúnni. Hinir 4 voru Gissur ÁR, Hafnarey SU, Nökkvi HU og Oddeyrin EA. Sama skrokkteikning var notuð á þá alla 5.



Hér er svo mynd af honum undir núverandi nafni Berglín GK 300

19.04.2012 13:58

Gleðilegt sumar.




Óska öllum lesendum síðunar gleðilegs sumars.

19.04.2012 13:03

Andanes GY 53




Andanes GY 53 var smíðaður hjá Cocranes í Shelby 1952 og var síðasti togarinn sem smíðaður var fyrir Rinovía útgerðina í Grimsby. Árið 1961 er togarinn svo seldur og fær nafnið Ross Figther GY 53.Togarinn var svo endurbyggður árið 1963 og breitt í frystitogara en þeim græjum svo hennt í land aftur tveimur árum síðar. Síðasta nafnið sem togarinn bar var Ross Ramillies GY 53. Ég er nokkuð viss um að vinur minn Óskar Ólafsson er mér sammála um að það séu fallegar línur í þessum togara.



Hér er svo sami togari eftir breitingarnar sem á honum voru gerðar árið 1963 en þarna er hann undir sínu síðasta nafni Ross Ramillies GY 53. Það má segja að togarinn er búinn að tapa svoldið af glæsileikanum eftir að bb ganginum var lokað.


19.04.2012 10:22

76 Særún GK 120




Særún GK 120 einn tappatogarana 12 en allir voru þeir búnir 800 hestafla MWM aðalvélum og eins voru í þeim rafdrifin togspil að Gunnari SU 139 undanskyldum. Særún hét upphaflega Jón Trausti ÞH 52 og var frá árinu 1959. Mörg nöfn bar hann á ferlinum sem endaði með því að hann sökk í Norðursjónum á leið sinni í pottinn í Danmörku fyrir einum 3 árum síðan.

18.04.2012 10:51

Skuturinn á Titanic




Hér má sjá skutinn á risaskipinu Titanic skömmu fyrir sjósettningu, takið eftir manninum sem stendur þana neðst á myndini, til samanburðar þá sést hversu rosalegur dallur þetta var.



Þetta eru sæmilegustu skrúfur þarna á Titanic.











Nú er þetta risakip búið að liggja á hafsbotni í 100 ár. Myndirnar eru fengnar af netinu.

18.04.2012 10:22

2388 Ingunn AK 150






Set hér inn tvær af Ingunni AK 150, þessar hef ég sennilega birt áður en það verður bara að hafa það. Þessar myndir tók ég sennilegast árið 2010.

17.04.2012 20:13

Somerset Maugham H 329


Hér er einn sem var alltaf í svolitlu uppáhaldi hjá mér flottur togari flott nafn og alltaf í toppnum hvað afla varðaði. Somerset Maugham H 329 var smíðaður árið 1961 hjá Cook Welton & Gemmel smíði no 965. togarinn var fyrsti díesel togarinn sem smíðaður var fyrir hið stóra útgerðarfélag Newington Steam Trawling í Hull.
Somerset Maugham var aflahæðstur allra togara í Bretlandi í fimm ár fyrst 1962 og svo 1965,1966 1967 og svo 1969. hinn frægi landhelgisbrjótur Dick Taylor var skipstjóri á togaranum og fiskaði kallinn ávalt vel. Somerset Maugham var seldur í brotajárn árið 1978 og varð hann því ekki eldri en 17 ára gamall.



Somerset Maugham var mældur 789 tonn og búinn 2000 hestafla C.D. Holmes Werkspoor aðalvél



Það voru flottar línur í þessari síðustu gerð síðutogara hjá Bretanum og vel er hann reistur á framendann.
Flettingar í dag: 72
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 1123
Gestir í gær: 448
Samtals flettingar: 1256661
Samtals gestir: 333522
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:05:40


Um mig

Nafn:

Tryggvi Bacon Sigurdsson

Farsími:

8963429

Afmælisdagur:

210157

Heimilisfang:

Dverghamar 8

Staðsetning:

Vestmannaeyjum

Heimasími:

4812636

Um:

Höfundur er að mestu alinn upp á bryggjunum og var oft líflegt þar.Hef alla tíð haft mikinn áhuga á bátum og skipum og hef alla tíð verið til sjós og hóf mína fyrstu vertíð árið 1974 síðastliðin 26 ár hef ég starfað sem yfirvélstjóri á Frá VE78.

Tenglar