Hér er mynd af Skuldini gömlu en svona leit hún út í upphafi, hún var tvístefnungur smíðuð í Danmörku árið 1921 og var í upphafi mæld 13 tonn,Skuld var lengd og endurbyggð i Vesturslippnum hér í eyjum árið 1943 og fékk hún þá líka nýtt stýrishús hún mældist eftir það 18 tonn. Skuldin var gerð út héðan frá eyjum í rétt tæp 60 ár.
Hér er svo Skuld VE 263 eftir breitingarnar sem gerðar voru á henni árið 1943. Þó Skuld hafi verið gerð út í hátt í 60 ár stórslysalaust þá voru endalokin hörmuleg því þann 10 júlí árið 1980 fórst Skuld út af Selvogi og með henni tveir menn en tveimur mönnum tókst að komast í gúmmbát og var bjargað um borð í fluttningaskipið Bifröst eftir 12 klukkutíma hrakninga í bjargbátnum.
Höfundur er að mestu alinn upp á bryggjunum og var oft líflegt þar.Hef alla tíð haft mikinn áhuga á bátum og skipum og hef alla tíð verið til sjós og hóf mína fyrstu vertíð árið 1974 síðastliðin 26 ár hef ég starfað sem yfirvélstjóri á Frá VE78.