Er þá ekki upplagt að koma með eina af elsta nótaskipi flotans Sigurði VE 15 en hann er rúmmum mánuði eldri en systurskipið Víkingur AK 100. Við sleppum Lundey NS alveg í þessu enda lítið eftir í henni sem var gamla í Narfa RE 13. Hann er vel smelltur þarna sá gamli í blíðuni.
Hér er flott mynd frá Sölva Breiðfjörð af 2407 Hákoni EA 148 en hann var smíðaður í Chile árið 2001 en hann ásamt Huginn VE 55 og Ingunni AK 150 voru yngst allra uppsjávarskipa landsins áður en Heimaey VE 1 kom í gær, nú er það stóra spurningin verður hún seld úr landi aftur eins og kom fram í fréttum sjónvarpsins í gærkvöldi og haft eftir stjórnarformanni Ísfélagsins um leið og búið var að binda hið nýja skip við bryggju.
Sumarið 2009 myndaði ég þessar leifar af þessum tveimur gömlum fiskibátum í Stykkishólmi. Sökum forvitni minnar langar mér að vita hvaða bátar þetta voru á sínum tíma og leita því til ykkar, ef einhver sem sér þetta og veit eitthvað um málið þætti mér vænt um að fá einhver svör um það hér eða bara á E mailið mitt.
Hér siglir Heimaey VE 1 inn á Vestmannaeyjahöfn í hádeginu í dag, Þar sem ég er á sjó þessa stundina að þá hjóp Sölvi Breiðfjörð undir bagga með mér og þakka ég honum liðlegheitin.
Stefán Geir Gunnarson sendi mér nokkrar myndir sem teknar voru á sínum tíma um borð í Halkion VE 205. Ég þakka Stebba Geir að sjálfsögðu fyrir sendinguna.
Frá vinstri talið, Hörður Adólfsson, Sigtryggur Vilhjálmsson ( Sissi hennar Jöru ) Karvel, Bergvin Oddson og Pálmi Lórensson.
Hér eru frá vinstri Beddi á Glófaxa, Pálmi Lór, Stefán Stefánsson vélstjóri og Karvel.
Hér er skipstjórinn á Halkion Stefán Stefánsson frá Gerði, en Stebbi var fengsæll skipstjóri og var þeirrar gæfu aðnjótandi að bjarga áhöfnum þriggja báta á ferli sínum.
Halkion VE 205 var einn Boizenburgarana 18 sem komu á árunum 1964 - 1967 og var hann sá þriðji í röðini af þeim að koma nýr til landsins. Halkion var seldur til Noregs árið 1975 og gerður þar út í á þriðja áratug.
Hér er vélstjórinn að hífa inn gott hol, en svona sá skipstjórinn þetta en öruggur er kallinn í hífinguni og vettlingarnir öruggir á handföngunum.
Svo var sest niður og spjallað smá við skipstjórann áður en farið var niður í aðgerð. Eitthvað hefur vélstjórinn nú samt verið illa fyrirkallaður þarna
Atlantis VE 222 var smíðaður í Vestm,eyjum árið 1919 af Magnúsi Jónssyni á Bergi, Magnús var bróðir þeirra Gunnars Marels, Guðmundar á Háeyri og Þórðar á Bergi sem allir voru skipasmiðir. Magnús var einn afkasta mesti skipasmiður eyjana og frumhvöðull í smíði kantsettra eða plánkabyggðra báta en hann smíðaði hvorki meira né minna en 11 báta á árinu 1919-1920 en Magnús lést á árinu 1920 úr berklum þá aðeins 28 ára að aldri. Bátarnir sem Magnús hannaði og stóð að smíði á voru eftirtaldir bátar.
1, Björg VE 206 Súðbyrt. 2, Kópur VE 212 Kantsettur. 3, Ása VE 214 Kantsett. 4, Faxi VE 215 Kantsettur. 5, Gylfi VE 218 Súðbyrtur. 6, Njörður VE 220 Kantsettur. 7, Atlantis VE 222 Kantsettur. 8, Tjaldur VE 225 Kantsettur. 9, Höfrungur VE 238 Kantsettur. 10, Olga VE239 Kantsett. 11, Undína VE 242.Kantsett.
Þeir bátar sem hvað lengst voru notaðir af bátum Magnúsar voru Höfrungur VE en hann hét síðar Gissur Hvíti IS hann rak á land við Brjánslæk árið 1981 og eyðilagðist og svo Úndína en hún bar síðar nafnið Vinur VE 17 og var dæmd ónýt eftir að hafa lent í árekstri við annan bát árið 1964. En aftur að Atlantis VE 222 enda myndin hér að ofan af honum. Hann hét frá árinu 1946 Snæfellingur SH 2 en talinn ónítur árið 1948
Hér er Vísir IS 225 stór og mikill eikarbátur mældur 91 tonn hann hét nýr Sif IS 500 og var smíðaður í Neskaupstað árið 1964 og var í upphafi gerður út frá Súgandafirði. hann hét síðan eftirfarandi nöfnum Sif GK 777, Sævaldur SF 5, Sif SH 3,Þórður Bergsveinsson SH 3, Sif AK 17, Sif IS 225, Vísir IS 225, Vísir SH 327, Vísir SH 343, og Vísir BA 343. Í bókaflokknum Islensk skip er sagt að báturinn hafi verið seldur úr landi í nóvember árið 1997 en mig mynnir að hann hafi brunnið og farið hvergi og hafi verið fargað hér heima en þið leiðréttið mig bara ef ég er að bulla eitthvað.
Hér eru Ver VE 318 og annað hvort Soffí eða Sísí VE á fullri ferð inn innsiglinguna báðir voru bátarnir smíðaðir í sömu skipasmíðastöðini í Frederikssundi í Danmörku Ver frá árinu 1934 en Sísí frá 1924.
Hér leggur fyrsti díseltogari landsmanna Hallveig Fróðadóttir RE 203 í veiðiferð. Þetta er sennilegast í restina á útgerðarsögu þessa togara búið að henda trébjargbátunum í land og afturmastið komið fram fyrir skorsteininn þegar þarna var komið við sögu var skipstjóri á Veiguni, Eyjólfur Péturson þá kornungur maður, en Eyfi var síðan lengi skipstjóri á skuttogaranum Vestmannaey VE 54.
Í dag er 11 maí og er það hinn gamli dagur loka vertíðar við Suðurland. Er ekki bara upplagt að koma með myndir af eina bátnum sem við eigum enn hér og er smíðaður sem vertíðarbátur í Vestmannaeyjum árið 1947.
Gaman að hafa hann svona í þessari áður stærðstu verstöð landsins hvorki meira né minna.
Hér eru tvær myndir af stýrishúsinu á honum Blátindi VE 21. Þessar myndir tók ég í maí mánuði árið 2001 en þá var báturinn afhenntur til varðveislu.
Hér eru svo 3 myndir sem ég tók í morgun 11 maí af sama bát.
Hér er áhöfnin á Helga VE 333 í ísfiskssiglingum árið 1945 talið frá vinstri femri röð. Jón Valdimarsson 1 vélstjóri, Sveinn Matthíasson matsveinn, Magnús Jónsson II vélstjóri, Gunnar Eiríksson háseti. aftari röð f,v, Hjálmar Jónsson stýrimaður, Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Hallgrímur Júlíusson skipstjóri og Jósef Markússon háseti. Myndin er tekin úti í Fleetwood.
Hér er Helgi VE 333 við Norðurland á síldveiðum fyrsta sumarið sitt árið 1939 með nótarbátana uppi í davíðunum.
Höfundur er að mestu alinn upp á bryggjunum og var oft líflegt þar.Hef alla tíð haft mikinn áhuga á bátum og skipum og hef alla tíð verið til sjós og hóf mína fyrstu vertíð árið 1974 síðastliðin 26 ár hef ég starfað sem yfirvélstjóri á Frá VE78.