Bátar og skip


Færslur: 2012 Febrúar

29.02.2012 17:24

Um borð í Þorgeiri Goða VE 34




Hér er hinn aldni formaður Þorsteinn Jónsson frá Laufási um borð í Þorgeir Goða VE 34 en Þorsteinn var einn af fyrstu mönnum hér í eyjum að gera út vélbát í upphafi síðustu aldar en hann átti bátinn Unni VE 80 og var formaður á henni og þar áður á áraskipunum. Þorsteinn skrifaði bækurnar Formansævi í Eyjum og Aldahvörf í Eyjum báðar þessar bækur eru mikill fróðleikur um útgerðarsöguna hér í upphafi og fram til ársins 1930. Sá gamli var manna fróðastur um fiskimiðin og botnlagið hér við Eyjar og þekkti þetta allt eins og puttana á sér. Þessi mynd kemur frá afabarni Þorsteins, Gylfa Ingólfssyni og þakka ég það.



Hér er svo mynd af Þorgeir Goða en þarna heitir hann sínu síðasta nafni Þórkatla GK 97 báturinn var smíðaður í Svíþjóð árið 1946 mældur 67 tonn og var einn blöðrubátana sem fluttir voru notaðir inn til landsins á sínum tíma. Þórkatla strandaði við Grindavík í nóvember mánuði árið 1961 áhöfnin bjargaðist öll en báturinn varð til á strandstað.

28.02.2012 23:18

2287 Bjarni Ólafsson AK 70.


Bjarni Ólafsson AK 70 sigldi framhjá okkur um daginn og tók ég þessa syrpu þá.











Bjarni Ólafsson AK 70 var smíðaður í Hölandsbygd í Noregi árið 1978 en innfluttur árið 1997, hann er mældur 984 tonn og búinn 4,800 hestafla Wichmann aðalvél

28.02.2012 12:29

Varðandi elsta skipsnafn á Islandi.





Ég spurði um daginn hvað menn teldu vera elsta skipsnafn á Islandi sem notað hefur verið óslitið fram á þennan dag. Myndin tengist þessu ekki á nokkurn hátt en hún kemur frá Gylfa Ingólfssyni og þakka ég það. Það komu fram mörg nöfn í þessum pælingum. Ég þakka fyrir viðbrögðin en nöfnin sem nefnd voru eru eftirtalin.

 Frosti.
Bliki.
Goðafoss.
Svanur.
 Gunnar Hámundarson.
Ölver.
Andri.
Fönix.
Kap.
Voninn.
Ísleifur.
Kúði.
Hanna.
Síldin.
Bliki.
Gæfa.
Það er bara gaman að spá í þetta og víst er að þessi nöfn hafa öll lifað með okkur í gegnum árin.

28.02.2012 10:00

Frida Sophia GY 326 og Ketillinn úr henni.




Hér er gufuketillinn sem notaður var í Lifrarsamlagi Vestmannaeyja frá árinu 1932 og var hann í notkun þar í yfir 70 ár. Nú er hann notaður sem minnismerki um Lifrarsamlagið sáluga, ketillinn kom úr strönduðum togara sem strandaði hér við Hafnargarðinn þann 15 nóvember árið 1931. Mikið erum við búnir að leita að mynd af togaranum sem þessi stóri ketill tilheyrði í upphafi.Togarinn umæddi hét Frida Sophia GY 326 og var gerður út frá Grimsby. Hann var smíðaður í Þýskalandi árið 1905 og hafði heitið nýr Baden og svo Bauk áður en hann var seldur til Englands árið 1930 og fékk áður nefnt nafn Frida Sophia GY 326. Nú um daginn rak svo á fjörur mínar mynd af þessum togara og er hún hér að neðan.



Hér er svo mynd af Frídu Sophiu GY 326 og myndin eins og sjá má tekin hér inni á höfnini, þarna ríkur aðeins upp úr skorsteininum og er ketillinn sennilega með damp. En síðan átti Júlli heitinn á Hlíðarenda eftir að vinna við þennan ketil næstu hálfu öldina eða svo.

27.02.2012 19:21

1918 Gæfa VE 11




Er þá ekki bara að koma með Gæfu VE 11 en þessi tók við af gömlu, þarna er Gæfa í prufusiglingu eftir að hún var skutlengd, hún var smíðuð í Englandi árið 1988,og er búin að heita fullt af nöfnum síðan þessi mynd var tekin, Svala VE, Góa VE, Sæfaxi VE, Sigurbára VE, Gunnhildur IS, Ingólfur GK, Svala Dís KE, Happi KE, Æskan VE, Æskan RE. og held að hún heiti það í dag.
Óli á Hvoli eigandi Gæfu VE 11 tjáði mér að nafnið Gæfa hafi verið í hans ætt frá því fyrir aldamótinn 1900 og réri langafi hans Ástgeir í Bæ á teinæring með þessu nafni um tíma notuðu þeir Betelbræður Óskar og Einar Gíslason nafnið á sinni Gæfu VE 9 og eins Jón Markússon með Gæfu VE 50, Ég er samt ekki viss um að þetta nafn hafi óslitið verið notað fram á þennan dag



Hér er svo mynd af sama bát en hann heitir í dag Æskan RE 222. Ég þakka Markúsi fyrir myndina

27.02.2012 12:58

409 Gæfa VE 11




Óli Guðjóns á Gæfuni sagði mér í morgun að hann hafi ekki fundið fyrstu Gæfuna sína á síðuni svo hér er hún. Gæfa VE var smíðuð í Hafnarfirði árið 1954 og hét Faxi GK 129. Báturinn er sennilegast systurskip Hafrúnar KE hans Auðunns Jörgenssonar, en þessi hefur verið dekkaður síðar þó er ég ekki viss um það.

26.02.2012 23:30

Þegar Bylgja VE 75 kom ný árið 1992


Hér eru myndir sem ég tók þegar Bylgja VE 75 kom fyrsta skipti til heimahafnar árið 1992, en hún var smíðuð á Akureyri og hafði legið þar lengi áður en hún var seld til Eyja.



Það eru ekki allir sem muna eftir því að Bylgja var blá fyrsta árið sem hún var gerð út en svona var hún þangað til hún for í slipp þá var settur rústrauði liturinn á hana sem hún ber enn þann dag í dag.







Mér finnst nú blái liturinn fara henni betur.

26.02.2012 15:46

Ein hátt í hundrað ára gömul.




Hér er ein vel gömul og flott sem sýnir pallakrærnar vel og ekki skemmir nú fyrir myndini að Hjálparinn VE 232 er þarna á bóli í forgrunninn ( Með gamla húsinu )

26.02.2012 13:59

Staðreyndin um Úranus og Marz

Hafa skal það sem sannara reynist

Á síðu Hafliða Óskarsonar á Húsavík er pistill um togarana Úranus RE 343 og Marz RE 261 ,Þar er því haldið fram að ég síðuritari hér fari með rangt mál um endalok ofangreindra togara Tryggva Ófeigssonar og því jafnframt haldið fram að b/v Úranus RE 343 hafi verið seldur úti í Englandi og áhöfnin síðan komið heim með b/v Marz RE 261. Ekki veit ég hvar Hafliði fékk þessar sögur eða upplýsingar en víst er að þarna fer hann með rangt mál að öllu leiti.
Hafliði Óskarson á Húsavík er einn okkar alfróðasti maður um sögu nýsköpunartogarana og því enn furðulegra að hann skuli halda svona vitleysu fram.
Máli minu til stuðnings ætla ég að skrifa orðrétt upp úr bókini Tryggva saga Ófeigssonar og er skrifað þar á síður 315-316 eftirfarandi um lok allra Nýsköpunarogara Tryggva.
Í bókini stendur orðrétt " Marzinum var lagt fyrst af Tryggva-togurunum hann landaði síðasta túrinn í Cuxhaven og kom heim úr þeim túr 26 nóvember 1971 og var lagt.
Áfram var þraukað með hina 3 togarana þar til snemma árs 1974 Neptúnus landaði sínum síðasta túr í Færeyjum 26-27 febrúar 1974 og kom heim til Reykjavíkur 2 mars og var lagt í Þanghafinu. Tuttugu og sjö ára ferli þessa skips var lokið.
Úranus kom inn úr síðasta túr 7 marz 1974 og var lagt við hlið hinna tveggja"
neðar á síðu 316 stendur svo" Úranus og Marzinn lágu þar til 17 apríl ÞÁ SIGLDI ÚRANUS MEÐ MARZINN Í TOGI ÁLEIÐIS TIL SPÁNAR. Þangað höfðu þeir verið seldir í brotajárn.
Neptúnus lá þar til 7 oktober 1976 að hann sigldi út úr höfnini einig seldur í brotajárn. Hann þeitti mikinn flautuna um leið og hann sigldi út úr Reykjavíkur höfn"  tilvittnun líkur.
Sem sagt ég var bara alls ekki að bulla neitt varðandi Úranus hér um daginn og eins hef ég haldið þessu fram áður enda átti ég heima í Rvk árið 1974 þá 17 ára gamall ( Þá þegar kominn með bátadellu) Og man vel eftir þessu þegar verið var að græja Marzinn í tog aftan í Úranus við kæjann þar sem Hvalbátarnir liggja í dag.
En hvað um það þá ég ráðlegg öllum mönnum sem áhuga hafa á nýsköpunartogurunum að lesa bók Tryggva Ófeigsonar hún er hafsjór af fróðleik um gömlu síðutogarana.




Hér siglir Marz  RE 261 út úr Rvk höfn undir eigin vélarafli svo ekki er hann á leið í brotajárn þarna blessaður.



Og hér er Úranus RE 343 sá sem dróg Marzinn til Spánar í brotajárn.

26.02.2012 00:05

Norðborg KG 689









Já þetta er bara flott skip hjá frændum vorum Færeyjingum



Það má eiginlega segja að það er gaman að sjá þetta skip með eigin augum
eins og maðurinn sagði um árið



Norðborg KG 689 var smíðuð í Asmar skipasmíðastöðini í Chile árið 2008 en sú sama stöð hefur smíðað flest af nýjustu skipum okkar Íslendinga.



Norðborg er mæld 83,5 metrar á lengd 18,4 á breidd og 16,65 á dýpt hún er búin 8,160 hestafla Wichmann aðalvél

25.02.2012 17:07

Já við erum ekki með neinum slorpungum.


Já það er bara flottasta uppsjávarskipið í Norður Atlantshafi og flaggskip Færeyjinga á sama sjó og Frár VE 78. Það er alltaf gaman að vera svona innan um jafningja ha ha ha.



Já það er sjálf Norðborg KG 689 sem sigldi framhjá okkur nú rétt áðan.



Þetta er ekkert smá skip þarna á ferðini.



Gaman að breita aðeins til og koma með hana svona í pörtum. En Sigmar Þröstur heimtaði þetta og auðvitað verður maður að vera góður við frænda.



Ég kem svo með syrpuna af Norðborgini eftir miðnætti eða bara á morgun svo þið þurfið nú ekki að vera að vaka eftir því.

25.02.2012 12:37

2772 Álsey VE 2






Hér eru tvær myndir af Álsey VE 2 en þessar tók ég í gær þegar hún var að snúast inn í höfnini. Álsey ber aflann vel og ekki fjótandi þarna inn á dekkið enda mikið fríborð þarna til staðar. Álsey var flutt inn notuð til landsins árið 2007 þá bara 20 ára gömul, en hún var smíðuð í Flekkefjörd Noregi árið 1987 málin eru ML 65,65 og B 12,60, D 10.66

25.02.2012 00:10

635 Kári VE 47




Hér er svo Kári VE 47 sem tók við af þeim gamla VE 27 en þessi Kári var smíðaður í Skipasmíðastöð Vestmannaeyja og hafði smíðanúmmerið 5  yfirsmiður var Runólfur Jóhannsson og hannaði hann janframt bátinn. Kári var sjósettur nýr þann 20 janúar árið 1945. hann var talinn ónýtur og brenndur í október árið 1965. Nú er það spurningin til Gunnars í Svanhól var þessi Kári betri bátur en Voninn II ? Ja það er nú það en auðvitað hef ég mína skoðun á því.

24.02.2012 18:34

Kári VE 27




Kári VE 27 báturinn var smíðaður í Danmörku árið 1917 og var mældur 34 tonn. Hann hét fyrst Kári IS 417 síðan frá árinu 1930 Kári EA 320, árið 1940 heitir hann Kári VE 27 og frá árinu 1944 heitir hann sínu síðasta nafni Halkion VE 27, báturinn sökk þann 15 septmber árið 1955 áhöfnin bjargaðist öll heilu og höldnu um borð í Vonarstjörnuna VE 26.

24.02.2012 10:21

Jarðarför fyrrum skipsfélaga.




Í dag þann 24/02 kl 16,00 verður borinn til grafar frá Landakirkju Halldór Guðbjörnsson. Dóri var skipsfélagi okkar á Frá VE 78 til fjölda ára bæði sem stýrimaður og skipstjóri. Við fyrrum skipsfélagar Dóra þökkum samstarfið sem stóð vel á annan áratug og vottum aðstandendum hans okkar innilegustu samúðar.
fyrir hönd okkar allra
Tryggvi Sigurðsson

Flettingar í dag: 72
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 1123
Gestir í gær: 448
Samtals flettingar: 1256661
Samtals gestir: 333522
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:05:40


Um mig

Nafn:

Tryggvi Bacon Sigurdsson

Farsími:

8963429

Afmælisdagur:

210157

Heimilisfang:

Dverghamar 8

Staðsetning:

Vestmannaeyjum

Heimasími:

4812636

Um:

Höfundur er að mestu alinn upp á bryggjunum og var oft líflegt þar.Hef alla tíð haft mikinn áhuga á bátum og skipum og hef alla tíð verið til sjós og hóf mína fyrstu vertíð árið 1974 síðastliðin 26 ár hef ég starfað sem yfirvélstjóri á Frá VE78.

Tenglar